|
Skrifað af: Ingvar Hrólfsson
|
|
Miðvikudagur, 11. janúar 2012 17:43 |
|
Aðalfundur bifhjólaklúbbsins Goðar verður haldinn laugardaginn 28 Janúar kl 14.00 í Bókakaffi Fellabæ.
Venjuleg aðalfundastörf
Húsnæðismál.
Félögum hefur verið sent fundarboð í tölvupósti.
Munið eftir korti eða klinki í vasann því Gréta verður með kaffi og eitthvað meðlæti fyrir okkur.
Kv
Ingvar Hrólfs.
Goði # 6.
Vargur. |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 13. janúar 2012 17:32 |
|
|
Skrifað af: Ingvar Hrólfsson
|
|
Fimmtudagur, 12. janúar 2012 08:16 |
|

|
|
Skrifað af: Ingvar Hrólfsson
|
|
Laugardagur, 31. desember 2011 13:56 |
|
Goðar Bifhjólaklúbbur óskar landsmönnum öllum gleðilegs árs og farsældar á nýju ári með kærum þökkum fyrir
árið sem er að líða.

|
|
Síðast uppfært: Sunnudagur, 01. janúar 2012 22:36 |
|
Skrifað af: Ingvar Hrólfsson
|
|
Miðvikudagur, 28. desember 2011 13:05 |
|
Í mars 2012 verður Bike week haldin á Daytona Beach í sjötugasta og fyrsta skipti.
Það sem er óvenjulegt við þessa hátíð í ár er að hún er haldin viku seinna en venjulega, eða 9-18 mars og kemur þetta til vegna þess að Nascar hefur ákveðið að halda Indy 500 kapaksturinn viku seinna en venjulega. Daytona International Speedway þarf víst tvær vikur til þess breyta brautinni og öllum aðstæðum þar eftir Indy kappaksturinn svo hún henti mótorhjólum.
Það væri ekki leiðinlegt að mæta á þennan viðburð en ég veit til þess að Högni Páll ætlar að heiðra þessa samkomu með næveru sinni. Hér fyrir neðan eru tveir linkar inn á þennan viðburð sem gaman er að skoða.

http://www.officialbikeweek.com/
http://www.motorcycle-usa.com/653/9529/Motorcycle-Article/Bike-Week-2012-Pushed-Back-a-Week.aspx |
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. desember 2011 13:42 |
|
Skrifað af: Ingvar Hrólfsson
|
|
Þriðjudagur, 27. desember 2011 14:00 |
|
Það er nú skömm frá því að segja en ég var bara núna í þessum skrifuðu orðum að rekast á eftirfarandi póst frá Bergi Kristinsyni, Snigli og Gaflara.
Þó svo að við getum ekki skráð inn einhverja viðburði (Goðar eru svo duglegir að setja upp einhverja viðburði) þá er gaman að skoða þetta og kanski nýtist þetta einhverjum okkar.

SMC í Svíþjóð gefur árlega út bók með upplýsingum um mót og viðburði sem eru áhugaverðir fyrir mótorhjólafólk. Bókinni er dreift í Svíðþóð og inniheldur eins og áður sagði upplýsingar um mót víðsvegar í heiminum. Íslenskum klúbbum sem eru með mót næsta sumar gefst kostur á að send inn upplýsingar um mótin og fá þau birt í bókinni sér að kostnaðarlausu. Það gæti verið góð auglýsing fyrir íslensku klúbbana að senda inn upplýsingar. Hægt er að skrá mótin á vefnum hjá SMC en slóðin er http://www.svmc.se/templates/Page.aspx?id=9837 Skráning þarf að hafa borist fyrir 15. desember 2011 Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Sniglum
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
SMC eru hagsmunasamtök mótorhjólafólks í Svíþjóð og aðilar að FEMA ( www.fema-online.eu )
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 5 |